Það fylgir haustinu einhver einkennileg krafa um að taka sig taki.
Nú skal hreyfa sig meira, borða betur, sofa lengur, skipuleggja vikuna, taka vítamínin, lesa góðu bókina og helst vera komin með einhver háleit markmið fyrir veturinn.
En hvað ef okkur langar bara að eiga svolítið gott haust?
Fara út þegar veðrið er fallegt. Hreyfa okkur af því að okkur líður vel af því. Hitta fólk sem fær okkur til að hlæja. Klæða okkur í eitthvað sem okkur finnst við flottar í. Bóka ferð sem okkur hefur lengi langað að fara í.
Kannski þurfum við ekki alltaf að vera að vinna í okkur sjálfum.
Það má fara í göngutúr án þess að telja skrefin. Lesa bók án þess að hún þurfi að kenna okkur neitt. Fara í sund af því að það er gott að liggja í heita pottinum. Kaupa fallega peysu af því að okkur langar í hana. Og stundum má alveg sleppa jóganu og fá sér köku.
Ekki til að verða betri útgáfa af okkur sjálfum.
Bara af því að lífið er núna — og það getur verið býsna gott ef við látum ekkert aftra okkur frá því að njóta þess.