Það er erfitt að lýsa tilfinningunni að vakna á suðurströnd Krítar. Sjórinn er spegilsléttur, loftið ilmar af jurtum og áður en dagurinn byrjar safnast hópurinn saman í jóga undir berum himni.

Í amstri dagsins gleymum við stundum að hreyfing þarf ekki alltaf að snúast um afrek. Hún getur líka verið leið til að anda dýpra, endurhlaða sig og hlúa að líkama og sál.

Kannski er besta ferðalagið ekki alltaf það sem fer með okkur lengst heldur það sem færir okkur nær okkur sjálfum

Kannski er það þess vegna sem dagarnir á Krít sitja enn svona sterkt í minninu.

Jóga á Krít

Á suðurströnd Krítar, þar sem hvít hús liggja í hlíðinni við tæran sjóinn, virðist tíminn hægja á sér þegar dagarnir byrja með jóga í morgunsólinni. 

Fuglasöngur fyllti loftið, geitur með bjöllur um hálsinn röltu um hlíðarnar og ilmur af villtum jurtum barst með morgunvindinum. Enginn virtist vera að flýta sér. Það var engin ástæði til að horfa á klukkuna.

Þarna varð hreyfingin ekki verkefni heldur hluti af góðum degi.

 

 

Af hverju er sjórinn svona tær

Eitt af því fyrsta sem flestir taka eftir er liturinn á sjónum.

Sjórinn við suðurströnd Krítar er óvenju tær vegna þess að þar eru fáar ár sem bera leir út í hafið. Botninn er grýttur og straumarnir halda sjónum hreinum. Jafnvel á nokkurra metra dýpi má sjá steinana á botninum.

Það hefur róandi áhrif að synda í svona tæru vatni. Maður hægir ósjálfrátt á sér.

Hvort sem þú snorklar, leigir þér SUP-bretti eða hjólabát verður upplifunin einstök.

 

Krít ilmar

Bougainvillea klifrar upp veggi og yfir svalir í skærbleikum og fjólubláum litum. Á heitum dögum fyllist loftið af ilm frá jurtum og jafnvel göngutúr út í búð verður hluti af upplifuninni.

Kannski er það einmitt það sem gerir Miðjarðarhafið svo sérstakt. Litirnir, ilmurinn og kyrrðin gera það næstum ómögulegt að vera annars staðar en í augnablikinu.

 

 

 

Smá stund fyrir sjálfa sig

Hvort sem það er jóga, göngutúr við sjóinn eða nokkrar mínútur í kyrrð skiptir regluleg hreyfing meira máli en fullkomin æfingaáætlun. 

Við þurfum ekki alltaf að gera meira. Stundum þurfum við einfaldlega að gefa okkur tíma. 

 

 

 

Fatnaður sem fylgir deginum

Þegar dagarnir snúast um hreyfingu, göngur, sund og slökun verður fatnaðurinn hluti af upplifuninni. 

Active-línan frá Perfect Moment reyndist einstaklega vel í ferðinni. Flíkurnar henta jafnt í morgunjóga, göngutúr niður að sjó og eða hvaða ævintýri sem dagurinn ber í skauti sér. Þær hreyfast með líkamanum og líta jafnframt þannig út að auðvelt er að fara beint úr morgunjóga í kaffibolla eða göngutúr án þess að þurfa að skipta um föt. 

Svo er það sundið

Það er erfitt að standast tæran sjóinn þegar hitinn er kominn yfir þrjátíu gráður.

Það leið varla sá dagur að við skelltum okkur ekki í sjóinn. Þá er gott að vera í sundfötum sem sitja vel, þorna fljótt og eru jafn falleg og þau eru þægileg.

Kannski er vellíðan ekki fólgin í því að gera meira heldur í því að gefa sér tíma til að hreyfa sig, anda djúpt og njóta þess að vera þar sem maður er.

Fyrir okkur er það hið fullkomna augnablik. Það er einmitt það sem Perfect Moment snýst um.