Hlýja sem tekur pláss — og útlit sem vekur athygli. Súpernóva frá Perfect Moment er dúnúlpa með ýktu, rúmu sniði sem umvefur líkamann. Fylling úr andadúni og fjöðrum með 700 fill power veitir góða hlýju á köldum dögum.
Stór hetta með rennilás og áberandi stjarna á bakinu gefa úlpunni einkennandi Perfect Moment yfirbragð. Flott í après-ski og á vetrarröltinu í bænum.