Klassískir kaðlar með stjörnusvip. Stjörnubjört frá Perfect Moment er hlý peysa úr 100% ull, með rúmu sniði og notalegum rúllukraga. Kaðlaprjónið og einkennandi stjörnur Perfect Moment gera hana að skemmtilegri vetrarflík sem vekur athygli.
Stroff við kraga, ermar og fald fullkomnar útlitið. Flott við gallabuxurnar í bænum eða mjúkar prjónabuxur eftir dag í brekkunum.
Efni: 100% ull.
Meðhöndlun: Meðhöndlið af varúð og forðist núning. Lítilsháttar hnökrar geta myndast við notkun.