Klassísk prjónahúfa úr 100% ull frá Perfect Moment.
Fönn er hlý og mjúk vetrarhúfa með fallegu stroffprjóni. Einkennandi stjörnumerki Perfect Moment gefur húfunni látlaust en töff yfirbragð.
Húfan er framleidd á Ítalíu úr 100% ull og er tilvalin fyrir kalda vetrardaga – hvort sem leiðin liggur í skíðabrekkuna, í gönguferð eða út í bæ.