Monkey – skemmtikraftur á fæti
Þessir sokkar frá XPOOOS eru ekki fyrir feimna! Með djörfu mynstri af höfuðkúpuapa og gulum áherslulitum gefa þeir hversdagslúkkinu einstakan karakter og smá villimannastæl.
Þeir eru úr léttu og mjúku efni sem andar vel og heldur þægindum allan daginn – hvort sem þú ert í skrifstofunni eða á eigin frumskógarslóðum. Teygjanlegt stroff tryggir að þeir sitji þar sem þeir eiga að vera.
Fyrir þá sem vilja stíl með attitjúd – og ekkert á móti smá apabrag. 🐒💀🧦
Fyrir fróðleiksfúsa:
Aðdáendur Línu Langsokks kannast eflaust við apann hennar, herra Níels. Hann er ekki bara krútt, heldur fulltrúi tegundarinnar Saimiri boliviensis – eða höfuðkúpuapi, líkt og hann kallast á dönsku (dødninghovedabe) og þýsku (Totenkopfäffchen). Nafnið vísar til hvítleitra andlitsteikna sem minna óneitanlega á... ja, hauskúpu.
Þessir litlu skrattar koma frá Suður-Ameríku og eru bæði klárir, orkumiklir og ótrúlega fljótir. Akkúrat eins og sokkapar sem getur bjargað hversdagslúkki – með bros á vör og bita af frumskógi á fæti.