Áróra í nýju sniði - fyrir þær sem vilja skíðabuxur sem sitja aðeins neðar í mittinu.
Áróra Mid-rise byggja á vinsælu Áróra skíðabuxunum frá Perfect Moment en sitja neðar í mittinu. Sama einkennandi sniðið og tæknilegu eiginleikarnir gera þær bæði klæðilegar og vel útbúnar fyrir langa daga í fjallinu.
Buxurnar eru úr Toray Dermizax™ tækniefni með 10K vatnsheldni, auk þess sem þær eru vindheldar og anda vel. Efnið teygist á fjóra vegur og fylgir líkamanum vel í hreyfingu en mjúkt flísfóður að innan veitir hlýju og þægindi þegar hitastigið lækkar.
Teygjanlegar snjósvuntur halda snjónum úti og rennilásar neðst á skálmum auðvelda að koma þeim yfir skíðaskóna. Riri læsanlegar smellur að framan veita aukið öryggi og halda buxunum vel lokuðum í brekkunum.
Helstu eiginleikar:
Sama Áróra-útlitið og frammistaðan – nú í mittishæð sem hentar þeim sem vilja aðeins lægra snið.