Einföld, fáguð og ótrúlega þægileg samfella sem fylgir þér í gegnum virka og annasama daga.
Unnin úr ítölsku hágæðaefni sem mótar líkamann á náttúrulegan hátt og veitir þægilegt aðhald án þess að þrengja að. Efnið er það sama og notað er í sundfatnað, sem gerir samfelluna bæði endingargóða og mjúka viðkomu auk þess sem hún veitir UPF50+ sólarvörn.
Rúnnað hálsmál skapar kvenlegt og tímalaust útlit sem hentar jafnt við hreyfingu sem og í daglegu lífi, hvort sem þú ert á ferðinni, við sjóinn eða að njóta sumardaga í borginni.
Smellufesting að neðan og bómullarinnlegg tryggja þægindi og notagildi allan daginn.
Framleidd í Portúgal.