Léttur og þægilegur bolur með fallegu, einföldu yfirbragði sem hentar jafnt í hreyfingu og rólegar stundir.
Sniðið er kvenlegt og leggst fallega að líkamanum. Mjúk lífræn bómullin gerir hann sérstaklega þægilegan í notkun á meðan vandaður saumaskapur gefur fallega heildarmynd.
Þetta er bolur sem þú grípur í aftur og aftur, eftir æfingu, í göngutúr eða bara í hversdeginum.
100% lífræn bómull
Framleiddur í Portúgal.