Mjöll APRÉS – peysa sem sameinar hlýju og stíl.
Úr 100% ítalskri, Woolmark-vottaðri merino ull sem heldur á þér hita, andar vel og er einstaklega mjúk. Peysan fangar anda skíðamenningar með áberandi APRÉS mynstri að framan – bæði leikandi og glæsileg.
Í Parísargrænu öðlast þessi klassíska peysa ferskan og fágaðan blæ. Hún er jafn falleg undir skíðaúlpu í brekkunni eða með kápu í borginni. Hlý, endingargóð og tímalaus flík sem fylgir þér frá morgunskíðun til kvöldstemmingar.