Af hverju er gott að hlaupa með öðrum?
Það getur verið erfitt að koma sér af stað í hlaupum – hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin eða að byrja aftur eftir hlé eða meiðsli.
Við þekkjum þetta flest. Þú ætlar að fara út að hlaupa… en finnur svo eitthvað annað sem þarf að gera. Dagurinn líður og hlaupin bíða.
Einmitt þess vegna getur góður hlaupahópur skiptir sköpum.
Ef þú ert að byrja að hlaupa er gott að velja hlaupahóp þar sem boðið er upp á mismunandi hraðahópa. Þá geturðu byggt upp úthaldið á þínum eigin hraða, án þess að finna fyrir pressu.
Að hlaupa með öðrum veitir ekki aðeins meiri hvatningu heldur líka rútínu, stuðning og gleði. Þú mætir ekki bara fyrir sjálfa(n) þig heldur líka fyrir hópinn. Áður en varir verður hreyfingin hluti af daglegu lífi í stað verkefnis sem þú þarft að klára.
Fjölmargir hlaupahópar bjóða upp á námskeið og reglubundnar æfingar undir handleiðslu þjálfara. Þar færðu leiðsögn, stuðning og samfélag, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin(n).
Þetta snýst ekki um að finna „besta“ hlaupahópinn heldur þann sem hentar þér best.
- Hóp sem er nálægt heimili eða vinnu.
- Hóp með æfingatíma sem passa inn í þína rútínu.
- Hóp þar sem þér líður vel pg þú hlakkar til að mæta.
Þegar þú finnur rétta hópinn verður allt aðeins auðveldara.
Flest íþróttafélög eru með hlaupahópa á sínum snærum og með einfaldri leit á netinu má finna fjölmarga góða valkosti. Hér eru nokkrir sem við þekkjum til:.
- Hlaupahópur Stjörnunnar
- Náttúruhlaup
- Útihreyfingin
- Trimmklúbbur Seltjarnarness
- Laugaskokk
- Hlaupahópur HK
- Skokkhópum Hauka
- Hlaupahópur Aftureldingar, Mosó
Vantar þinn hlaupahóp á listann? Sendu okkur endilega skilaboð og við bætum honum við.
Á hlaup.is má einnig finna gagnlegar upplýsingar um hlaup á Íslandi, þar á meðal er listi yfir hlaupahópa um allt land.
Það er aldrei of seint að byrja.
Margir halda að hlaupahópar séu aðeins fyrir vana hlaupara. Reynslan er þó oft önnur. Flestir hópar taka vel á móti nýjum þátttakendum og bjóða upp á mismunandi upp á mismunandi hraðahópa.
Mikilvægast er ekki hversu hratt þú hleypur heldur að finna samfélag þar sem þér líður vel og þú hlakkar til næstu æfingar.
Útivera og hreyfing gera lífið betra.
Góða skemmtun!
